|
|
24.10.2007 18:09:55 / karenkaren
hef hvort sem er aldrei tíma til að blogga Held samt áfram með síðuna hans Tómasar svo þið getið séð myndir af yndinu mínu  Þið finnið mig á FACEBOOK sem Karen Gudjonsdottir Andersson (kan ekkert á MySpace því miður annars hefði ég frekar verið með síðu þar) Over & out / Karen
»
30.08.2007 16:58:18 / karenkaren
200 gr mjólkursúkkulaði 4 eggjarauður 4 dl þeyttur rjómi 2 - 3 bitar daim 1. Brytjið súkkulaðið í smá bita og bræðið yfir vatnsbaði. Brytjið síðan daim bitarna gróflega. 2. Takið síðan bráðna súkkulaðið og hrærið eggjarauðunum saman við (kraftlega) 3. Blandið síðan í þeytta rjómanum og daim bitunum, skellið í eina skál (eða nokkrar litlar eins og ísskálar eða eitthvað Og setjið í ískáp og látið standa nokkra tíma Mér finnst búðingurinn bestur ef hann fær að standa yfir nótt! Þessi uppskrift reiknas sem 6 skammtar en ég myndi nú segja meira 8. Ég ber þetta fram með þeyttum rjóma en svo er hægt að bera fram með ávöxtum eða nota bara ímyndunaraflið  Endilega prufið þessa uppskrift - búðingurinn er æði gæði  * K a R e N *
»
20.08.2007 18:16:34 / karenkaren
....kannski kominn tími á smá blogg frá minni Ég ætla ekkert að afsaka mig en það er ekki bara af hreinni leti sem ég hef ekki bloggað Hefur verið rosa mikið að gera í vinnunni hjá mér og svo hafa verið svo margir íslendingar í heimsókn hérna - maður verður nú að passa uppá að njóta þess að vera með þeim sem nenna að koma í heimsókn til okkar Það var alveg yndislegt að fá ykkur öll elsku mamma, pabbi, Jakob Máni minn (skrifstofumaður með meiru), Lena & síðast en ekki síst Geiri krútti. Þetta var alveg frábær tími - verst hvað tíminn er alltaf fljótur að líða! Annars er maður bara búinn að vera í smá fríi, frekar óheppin með rigningu næstum allan tímann En hafði það nú samt bara gott skal ég segja ykkur Maður getur sagt að sólskinið kom í miðri rigningunni því þá kom hún Lenus gerpið okkar og við áttum sko frábærar stundir saman (johan til mikillar gremju þegar komið var að því að sofa í húsvagninum og við Lena með svefngalsa alveg grenjandi úr hlátri eins og 2 smáskvísur) Herra morðingi já hmmmmm smá einkahúmor hjá mér og Lenu - en hún tók með sér næríurnar hans heim mohahahahhaha (segi ekki meir) Við gerðum svo mikið skemmtilegt öll saman að bloggið yrði nokkrar síður ef ég færi útí allt - læt frekar myndirnar tala sínu máli (koma bráðlega inná síðuna hans Tómasar) Jamm svo vil ég líka þakka fyrir mail, sms & samtöl sem ég fékk á afmælisdaginn minn - er alltaf svo glöð þegar fólk man eftir mér Ég hafði smá kvöldboð í tilefni dagsins og gerði meðal annars geggjað góðan dajm súkkulaðibúðing sem mamma var að læðast í nokkur kvöld á eftir mmmm deili kanski með mér uppskriftinni ef einhver vill  Tómas minn vex og dafnar þetta yndi, ögn frekur og breyttist rosalega þegar afi og amma og allir komu, varð eiginlega bara rosalega frekur og þá sérstaklega gagnvart mömmu sinni. En núna þegar allt er komið í "venjulegar" horfur er hann allt öðruvísi - ótrúlegt! Síðan velur hann líka hvort hann sér lítill eða stór eftir aðstæðum Akkúrat núna heldur hann því fram að hann sé stór því þá getur hann vakað lengur  Já og Kata skvís þú ert nú algjör að hafa verið að fylgjast með manni allan þennan tíma án þess að kommenta Hringi í þig bráðlega krúttan mín var svo upptekinn þegar þú hringdir um daginn - en yndislegt að heyra í þér! Já og haldiði að mín hafi ekki bara verið að kaupa sér bíl í dag! Yippie gaman gaman  hmmm eins og venjulega hélt ég myndi geta skrifað endalaust - en stend núna á gati - skrifa meira næst / Karen
»
28.06.2007 15:41:13 / karenkaren
jamms víst kominn tími til að blogga smá! Er búið að vera
svo mikið að gera í vinnunni uppá síðkastið að ég hef hreinlega
ekki haft orku í að blogga (svona er þetta með sumarfrí og svona þá
verður meira fyrir alla aðra að gera) En ég ákvað að skella
inn nokkrum línum núna áður en ég fer í það að taka aðeins til í
þessu hýsi okkar hérna 
Við erum búin að fara í fyrstu útileguna okkar með húsvagninn og
það var bara YNDISLEGT! Við fórum yfir midsommar þannig að það var
þriggja daga helgi í burtu þar sem midsommarafton er frídagur, þótt
hann sé ekki rauður dagur í almanakinu Við fórum
ásamt Karin og co. sem tóku með sér sinn vagn, og síðan komu
Pernilla og co. og gistu hjá okkur eina nótt, rosa gaman !! Reyndar
var ekkert rosa spennandi veður, grenjandi rigning helminginn af
útilegunni, en það var nú bara kósý að heyra rigninguna dynja á
þakinu og fínt að vera með svona stórt fortjald þannig að maður
hafði nóg að plássi og tómas gat leikið sér með bílamottuna sína og
svona Og við erum ekkert smá ánægð með vagninn, hann er
svo fínn og rúmgóður.
hmm veit ekki alveg hvað ég á að skrifa meira - maður man alltaf
fullt af dóti að segja frá áður en maður bloggar, en síðan þegar
maður byrjar þá man maður ekki neitt.............
Ég fer í 3ja vikna sumarfrí viku 28-30 (eins og svíarnir segja)
en það er víst 7 - 29 júlí eða eitthvað álíka. Það verður ekkert
smá yndislegt, og svo koma líka svo margir frá Íslandi í heimsókn -
æði gæði Kannski maður taki bara vagninn
með sér og skelli sér í Ullared verslunarferð með öllum
íslendingunum Og kósý útilegu í leiðinni þá 
Tómas minn vex og dafnar og er á "get sjálfur" tímabili núna og
svo er hann svo duglegur að hjálpa til þessi elska!
Svo erum við aðeins farin að pæla í að koma kannski á frónið
yfir jól & nýár það væri rosa gaman, verðum bara að sjá hvernig
gengur með að fá frí í vinnunni og að safna fyrir
ferðinni
Over and out / Karen
»
14.06.2007 08:59:22 / karenkaren
»
12.06.2007 11:11:18 / karenkaren
******* Kannski verðum
við orðin húsvagns eigendur í kvöld *******
»
04.06.2007 16:50:58 / karenkaren
Jamm það er sko langt síðan ég bloggaði síðast en það er búið að
vera alltof mikið að gera hjá mér uppá síðkastið (og svo
heimta ég meiri komment ef ég á að nenna þessu
bloggi) 
Á föstudaginn átti kallinn minn afmæli og vorum við með
brauðtertu og ístertu að bjóða uppá um kvöldið! Svo héldum við uppá
litla (stóra) Tómas okkar í gær með pomp og prakt. Hann var svo
ánægður með daginn þessi elska - það koma myndir úr afmælinu á
síðuna hans bráðlega Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða,
drengurinn minn bara orðinn 3ja ára (reyndar ekki fyrr en á morgun
þann 5a)! Á laugardagskvöldið fórum við síðan í eins árs
tvíbura afmæli hjá frænkum hans Tómasar svo við höfum sko borðað
mikið gott þessa helgina )
Ég er búin að fá "fasta" ráðningu í nýju vinnunni
og ágætis kauphækkun + 6 vikur í sumarfrí Er bara
nokkuð ánægð og ég fæ meira segja nudd og svona sem vinnan
borgar - ekki slæmt Svo er Johan líka að
fara að skipta um vinnu (hann var kominn með leið á gömlu vinnunni)
þannig að hann verður líka að vinna í Gautaborg eins og ég,
nema hann mun byrja fyrr og er heima á undan mér svo dagarnir á
leiksskólanum verða ekki mikið lengri hjá
Tómasi mínum!
hmmm maður hefur alveg fullt að segja frá en um leið og
maður sest og bloggar er eins og allt bara hverfi og svo þegar
maður er búinn að blogga þá man maður allt í einu ýmislegt -
kannist þið við þetta?
Hey já við erum búin að fara í
fyrstu útilegu ársins - fórum síðustu helgi með
vinapari okkar og syni þeirra og svo fékk Marie vinkona hans
Tómasar og koma með okkur og þau skemmtu sér svo vel og voru
ekkert smá ánægð með lífið Oh það er svo yndislegt
að fara í útilegur finnst mér Svo erum við að
pæla í að selja campern og fá okkur húsvagn í staðinn - meira
pláss og þægilegra að komast inn og út Vonandi
bara að við náum að selja campern því ég vill ekki
kaupa húsvagn áður en við erum búin að selja hann -
einn kall úr vinnunni hans Johans ætlar að skoða hann
í kvöld og fara síðan og ræða málin við kellinguna sína
(vona að þau kaupi hann hí hí)
Svo er þjóðhátíðardagur svía núna á miðvikudaginn, svíar
halda reyndar ekkert merkilega uppá þennan dag og ekki langt síðan
að hann varð "rauður" dagur í almanakinu (og þurfti maður að fórna
öðrum rauðum í staðinnj
Annars er búið að vera 25 stiga hiti í dag (Í SKUGGA) þannig að
svitinn hreinlega lak af manni, sundlaugin hans Tómasar dregin fram
og börnin skelltu sér í ískallt vatnið eins og ekkert væri
Enda MJÖG heitt úti, svo skelltu þau rennibrautinni í laugina og
skemmtu sér konunglega í "vatns"rennibrautinni 
Læt þetta duga í bili - vona að tilraun 2 takist hjá mér
núna 
Sólskinskveðja / Karen
»
13.05.2007 19:39:51 / karenkaren
En ég skemmti mér samt mjög vel í góðum félagsskap
Fengum brauðtertu í partýinu (nammi namm) og vín með
og síðan var tekið fram kaffi & baylis og svo gotterí og
svona 
Fyrir það fyrsta fannst mér ömurlegt að Eiríkur hafi ekki
komist áfram er búin að hitta marga hérna í Svíþjóðinni sem fannst
hann og lagið bara nokkuð gott Síðan duttu svíarnir út
líka (maður verður náttúrlega að halda með þeim) En
mér fannst þeir líka góðir Hélt annars líka með
Þýskalandi & Tyrklandi og einu landi í viðbót man bara ekki
akkúrat núna hvað það var og svo leist mér ekkert á
þessa LJÓTU konu sem vann.........og flest öll lögin voru bara
ömurleg vona að þetta verði betra á næsta ári !!!
Annars erum við ekki búin að gera neitt annað merkilegt um
helgina, fengum smá heimsókn í dag og skelltum okkur í heimsókn
líka, svo við erum nú mest búin að drekka kaffi í dag og spjalla um
heima og geima meðan að Tómas hefur leikið við vini sína

Og á morgun byrjar ný vinnuvika, sem ég hef beðið eftir alla
helgina - NOT - hefði sko alveg getað hugsað mér að sofa út á
morgun líka En næsta helgi verður nú komin áður en
maður veit af, tíminn er svo ótrúlega fljótur að líða.
Jamm læt þetta duga í bili hef ekkert að skrifa um / Karen
»
10.05.2007 18:09:05 / karenkaren
»
02.05.2007 17:55:00 / karenkaren
Já ég hef sko verið löt að blogga uppá síðkastið - en það er nú
ástæða fyrir því - það er búið að vera svo fínt veður hérna í
Sverige að ég tími hreinlega ekki að hanga inni og
blogga Nota frekar tímann í að vera úti
eftir vinnuna þar sem maður hangir inni allan daginn þar !! Svo er
líka nóg að gera í garðinum þannig að maður slær 2 flugur í
einu höggi 
svo næsta blogg verður líklegast á næsta rigningardegi

/ Karen
»
23.04.2007 10:26:39 / karenkaren
Jamm best að blogga smá svo fólk haldi ekki að maður sé
latur 
Lenus gerpið okkar var hjá okkur í 2 vikur yfir páskana sem var
auðvitað bara yndislegt !! Við versluðum saman, hún í búið sitt og
ég mest bara föt og svona fyrir Tómas og ofcourse
eitthvað fyrir mig líka Hún var líka rosa
myndarleg og hjálpaði til við heimilisstörfin og fór út
með hundinn í göngutúra og náði í Tómas á leiksskólann nokkra daga,
hjálpaði okkur mikið og var alveg frábær félagsskapur fyrir
mig - guð hvað við gátum hlegið af vitleysunni í
okkur Ohhh vildi að þú værir komin til okkar
aftur Lena !!
Lena & Geiri voru að kaupa sér
íbúð! Já litlasta systirin bara orðin fullorðin
Þau fengu afhent á föstudaginn var og eru búin að vera að mála
og þrífa og svona alla helgina, mamma ætlaði að hjálpa
þeim að þrífa eldhús inréttinguna, en það endaði víst
með ósköpum, haldið að gamla hafi ekki dottið niður
á flísargólfið og skollið svona harkalega í að hún endaði uppá
slysó með kúlu á hausnum á stærð við RISA epli Hún
var sett í heilaskanna og skoðuð öll og sem betur fer kom hún
vel út úr þessu - hjúkk!!
Akkúrat núna er ég lasarus, ekki gaman búin að vera þvílíkt
slöpp síðan á fimmtudaginn með hita og hor, illt í öllum vöðvum í
líkamanum, með hósta og hefur verið illt í
eyrunum, algjör aumingji bara !! En núna er ég öll að koma til
- er reyndar enn rosa kvefuð - en ég ætla að prufa að fara í vinnu
á morgun!
Svo hefur verið þetta fínasta veður hérna í Svíþjóðinni þannig
að mín er bara komin með lit og alles En akkúrat í
dag er svona vor rigning og grátt úti - fínt þá er maður ekki með
samviskubit yfir að hanga inni!
hmmm já hefur einhver prufað þetta frábæra ráð við
HIKSTA??? *forvitin*
Læt þetta duga í bili - verð að fara að snýta
mér........./Karen
»
28.03.2007 19:00:04 / karenkaren
Svei mér þá ég hélt ég kynni allar aðferðir til að losna
við hiksta, en viti menn haldiði að ég hafi ekki lært nýtt trix í
dag!
Ég fékk þennan líka svakalega hiksta í vinnunni í morgun og þá
kemur ein sem vinnur með mér og spyr hvort hún eigi að halda fyrir
eyrun á mér, og ég alveg HA? Þá sagði hún að ég ætti að drekka
vatn meðan að hún héldi fyrir eyrun á mér (og ég hélt virkilega að
liðið væri að djóka í mér þar sem ég er ný og svona...) en nei nei
haldiði að þetta hafi ekki bara virkað eins og skot !! Algjör
SNILLD !!
Varð bara að deila þessu með mér
Adios amigos / Karen
»
27.03.2007 18:27:40 / karenkaren
Já haldiði að vorið sé ekki bara komið hér í Sverige !
Búið að vera svooo gott veður, glampandi sól og hiti, heilar 18
gráður í gær og í dag !! Vona bara að vorið sé komið til að
vera, eða allavega þannig að maður fái ágætisveður um páskana !
Veit ekki hvort ég var búin að skrifa það, en hún LENA er að
koma til mín yfir páskana VEEEIIIIIIIIIIIIII !! Hlakka
ekkert smá til að fá litla gerpið til mín !! Hún kemur núna á
laugardaginn og verður hjá okkur þangað til 13 apríl !
Við ætlum að bralla ýmislegt saman: Lena ætlar að kaupa fullt í
búið (hún og Geiri voru að kaupa sér íbúð - enn og aftur til
hamingju elskurnar mínar) gerpið ætlar síðan að hjálpa mér að sauma
trúðabúning, við ætlum að klæða okkur eins og gamlar kellingar um
páskana og ganga um á milli húsa með körfu og fá nammi (myndir koma
I promise) síðan ætlum við að sjálfsögðu í fullt af göngutúrum með
Toby og já ýmislegt sem ekki er planað enn, enda er ekki gaman að
plana of mikið - maður verður að hafa tíma til að bara sitja og
spjalla líka !!
Untill we meet again / Karen
»
17.03.2007 19:38:08 / karenkaren
Dolly var ÆÐI !!!! Varla hægt að lýsa hversu FRÁBÆRT
þetta var síðustu helgi !!!! Ég táraðist þegar ég bara heyrði
röddina hennar, áður en maður sá hana á sviðinu - hún er yndisleg
!! Og ég hef aldrei verið eitthvað ýkt í sambandi við frægar
manneskjur en ég missti mig alveg þegar ég fór á tónleikana hennar
Dolly ! Hún er yfir sextugt eins og flestir vita, en þvílík
gella (þá er ég ekki að meina útlitslega séð því öll vitum við að
meirihlutinn af henni er sílíkon) en hún dillaði sér og gekk um á
svakalega háum hælum, spilaði á gítar (sem hún by the way hafði
skreytt með demöntum) en hún spilaði líka á píanó og eitthvað bonjo
hljóðfæri - man ekki hvað það heitir en það er eins og gítar bara
meira kringlótt í laginu og já hún var bara algjör skvísa með
þvílíka útgeislun......
...anyways svo talaði hún á milli laganna um æskuna sína og
hvaðan hún var og hvernig lögin komu til og svo framvegis, og hún
er aljgjör krútta, og hlý og góð er hún líka !!
En nóg um Dolly babe. Annars áttum við yndislega helgi saman við
hjónakornin, vorum komin á hótelið seinnipartinn, komum okkur fyrir
og pöntuðum okkur mat uppá herbergið, settumst síðan að snæðingi
fyrir framan undanúrslitin í Eurovision og höfðum það bara rosa
kósý fyrir framan imbann, opnuðum vínflösku og bara nutum lífsins -
lagið sem vann er rosa fínt finnst mér og hljómsveitin MJÖG spes,
en það er yfirleitt þannig að það sem er öðruvísi vinnur ! En þarna
voru bæði dómararnir og áhorfendur sammála um hver ætti að vinna og
það gerist ekki oft !
Á sunnudeginum tókum við síðan göngutúr um Karlstad og skoðuðum
okkur um, fórum síðan í heimsókn til vinar hans Johans sem býr rétt
fyrir utan Karlstad. Síðan var komið að tónleikunum og já OMG hvað
það var ótrúleg upplifun !
Jamm annars hefur bara verið venjuleg vinnuvika og í gær hittu
Johan & Tómas mig eftir vinnu í Gautaborg og við vorum að skoða
ýmislegt fyrir sumarið eins og nýja útidyrahurð og paviljong og
ýmisleg fleira ! Keyptum síðan svona cafe sett á
pallin fyrir framan útidyra hurðina (það eru 2 stólar og borð) og
vorum að sjálfsögðu dauðþreytt þegar við komum heim í gærkvöldi. Í
dag erum við búin að vera að vinna í að tæma rauða húsið að öllu
rusli og drasli sem er þar en komumst ekki langt með það í dag
(enda MIKIÐ drasl) en við fengum nefnilega heimsóknir og þá verður
maður náttúrlega að setjast og fá sér kaffi og spjalla - en það
gerðum við úti því það var þetta fínasta veður í dag með glampandi
sól !
Við ætlum nefnilega að breyta rauða húsinu aðeins (eða já ansi
mikið) en við ætlum að einangra efri hæðina og taka burtu
tröppurnar og setja þær annars staðar svo að klósettið og sturtan
niðri ásamt viðbyggingunni sem verður eldhús - ásamt efri hæðinni
sem verður stofa og svefnherbergi sem við getum síðan leigt út sem
íbúð Restin verður bílskúr fyrir manninn - en já fer
ekkert nánar útí þetta ekkert gaman að lesa þetta ef maður hefur
aldrei verið hérna Anyways ætlunin er að þetta verði
bílskúr og restin íbúð !
Akkúrat núna erum við þreytta fjölskyldan - ótrúlegt hvað
útiloftið gerir gott - maður verður svo þægilega þreyttur
eitthvað
Jebbs núna bíður familjen niðri við ætlum að fara að kíkja á
bíómynd og eigum væntanlega von á meiri heimsóknum
Tjingeling / Karen
»
08.03.2007 06:55:16 / karenkaren
Í gær tilkynnti Tómas okkur að hann héti Bertil?
Hvaðan fá þau allar sínar skrítnu hugmyndir ;-)
»
Síður: 1 2 3
|
|